Afmælisrit. Páll Hreinsson sextugur # 89943
- Regulärer Preis
- 6.900 kr
- Angebotspreis
- 6.900 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Afmælisrit. Páll Hreinsson sextugur, 20.febrúar 2023. Ritnefnd Tryggvi Gunnarsson, Kristín Benediktsdóttir, Ólafur Jóhannes Einarsson, Særún María Gunnarsdóttir, Arnaldur Hjartarson og Sindri M. Stephensen.
Þann 20. febrúar 2023 varð dr. juris Páll Hreinsson forseti EFTA-dómstólsins, fyrrverandi prófessor og hæstaréttardómari, sextugur. Í tilefni af þessum tímamótum hafa nokkrir vinir og samferðamenn Páls ákveðið að gefa út rit til heiðurs honum. Í ritnefnd ritsins eru Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, Kristín Benediktsdóttir, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands, Ólafur Jóhannes Einarsson, dómritari við EFTA-dómstólinn, Særún María Gunnarsdóttir, aðalskrifstofustjóri umboðsmanns Alþingis, Arnaldur Hjartarson, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og Sindri M. Stephensen, dósent við Lagadeild Háskólans í Reykjavík. Bókaútgáfan Fons Juris annast útgáfu ritsins sem mun koma út í maí.
Í afmælisritinu verða yfir tuttugu ritgerðir á þeim réttarsviðum sem einkenna rannsóknar- og starfsferil Páls, m.a. á sviði stjórnsýsluréttar, Evrópuréttar, fjármunaréttar og réttarfars.