Austan Elivoga # 14696
- Regulärer Preis
- 3.900 kr
- Angebotspreis
- 3.900 kr
- Regulärer Preis
Ausverkauft
- Stückpreis
- pro
Austan Elivoga. Gedichte von Böðvar Guðmundsson. Hier ist das erste Gedichtbuch von Böðvar erschienen.
Dalalæða
Hún læðist frá sjónum inn dalinn á döggvotum skóm
og dún sinn breiðir á holtin og grónar traðir
bæjanna, hylur þá sjálfa einn eftir einn,
ógrynnishaf, sem hvergi fær dunað né sorfið
strönd eða þangsker.
Hún þokast á brattann og fer
þvalköldum álagahöndum um vörður og leiti,
svo drangurinn gengur úr berginu brúnaþungt tröll,
brekkur og hlíðar togna í svimandi hrap.
Hún villir smalann, er leitar sauða og sér
svartálfabörnin að leik fyrir opnum riðum,
og heyrir útburðinn væla, veit að í holti
viðsjáll melrakkinn þýtur nasvís og frár
á sömu slóðir til ánna.
Eða hún hrekur
öndvert á brattann læki, hvítum fossi
stuggar úr gljúfrinu aftur upp fyrir brún.
Einmanalegust allra jarðneskra vætta
eigrar hún náttlangt þvert yfir víðar heiðar
og leitar í mónum löngu horfinna spora
liðinna manna,
hörfar fundlaus á braut
árla, en lætur lifandi grösum að drykk
liggja sólbrotin tár.