Biblía, það er öll heilög ritning # 89356

Regulärer Preis
95.000 kr
Angebotspreis
95.000 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Author
Location
Reykjavík. Hið Íslenska biblíufélag, 1859.
Date
Condition
Binding

Biblía, það er öll heilög ritning, út gefni að tilhlutun hins Íslenzka biblíufélags. 
6. útgáfa. (Rétt mun vera að þetta er 7. útgáfa Biblíunnar á íslenzku).
Reykjavíkurbiblía, 1859, er sjöunda heildarútgáfa Biblíunnar á íslensku, prentuð í Reykjavík, í Prentsmiðju Íslands, sem þá var í eigu Einars Þórðarsonar. 

Í Reykjavíkurbiblíu er texti Viðeyjarbiblíu (1841) prentaður nánast óbreyttur. Þarna eru Apókrýfar bækur Gamla testamentisins prentaðar í síðasta sinn í íslenskum biblíum um langt skeið. Þær voru aftur teknar upp í Biblíu 21. aldar, sem kom út 2007.

Mjög var til útgáfunnar vandað, bókin er í stærra broti en Viðeyjarbiblían, prentuð með gotnesku letri eins og allar fyrri biblíuútgáfur íslenskar, og er Reykjavíkurbiblían með því síðasta sem prentað var með því letri hér á landi. Er eins og menn hafi veigrað sér við að breyta þeirri hefð að prenta Biblíur með gotnesku letri, þó að latínuletur væri þá almennt notað á íslenskar bækur.
Reykjavíkurbiblían var gefin út í 2.000 eintökum.
Gott eintak Reykjavíkurbiblíunnar. Samtíma band.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.