Börn í Reykjavík # 91318

Regulärer Preis
9,500 kr
Angebotspreis
9,500 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Reykjavík. Mál og menning, 2024.
Date
—
Condition
—
Binding
—

 Börn í Reykjavík. Eftir Guðjón Friðriksson.
Börn í Reykjavík er einstæður fjársjóður handa öllum þeim sem hafa verið börn og eru það kannski enn, þeim sem eiga börn eða sinna börnum, og öllum þeim sem hafa áhuga á hinum gríðarlegu breytingum sem orðið hafa á íslensku samfélagi undanfarin 150 ár.
Bókin – sem tekin er saman í tilefni 100 ára afmælis Barnavinafélagsins Sumargjafar og gefin út í samstarfi við félagið – lýsir lífi barnanna í Reykjavík frá því seint á 19. öld til okkar daga. Börnin birtast okkur á hvunndagsfötum og sparibúin, sagt er frá leikjum þeirra og námi, frístundum og félagsstarfi, skemmtunum og margvíslegum skyldum. Vikið er að ýmsum óknyttum og orðbragði barna og fjallað um ólíkar aðstæður þeirra. Þá er mikilli þróun í barnaverndar-, uppeldis- og skólamálum á tímabilinu gerð ítarleg skil. Síðast en ekki síst er því lýst hvernig smám saman er farið að hugsa um börn sem einstaklinga með sjálfstæðan rétt og skoðanir.
Guðjón Friðriksson hefur skrifað ótal rit um hin ýmsu svið þjóðarsögunnar og hlotið fyrir margvísleg verðlaun og viðurkenningar. Hér snýr hann sér að undirstöðu þjóðarinnar: börnunum á hverjum tíma. Sagan er rakin í glöggum og skemmtilegum texta og vel á sjötta hundrað ljósmyndum. Útkoman er einstaklega heillandi aldarspegill sem ungir og aldnir munu gleyma sér yfir.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.