Bréf úr myrkri # 89767

Regulärer Preis
2.900 kr
Angebotspreis
2.900 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Reykjavík. Heimskringla, 1961.
Date
Condition
Binding

 Bréf úr myrkri. Skúli Guðjónsson segir frá.
Reikningsskil manns, sem orðið hefur fyrir því óhappi að missa sjón sína á miðjum aldri. Frásögn af því, hvernig hann hefur reynt að læra á lífið að nýju og finna veg þar sem enginn vegur virtist vera. (Káputexti).
Skúli Guðjóns­son fædd­ist 30. janú­ar 1903 á Ljót­unn­ar­stöðum í Hrútaf­irði, Strandasýslu. For­eldr­ar hans voru hjón­in Guðjón Guðmunds­son, f. 1867, d. 1954, og Björg Andrés­dótt­ir, f. 1866, d. 1929.
Skúli ólst upp á Ljót­unn­ar­stöðum, var við nám í Sam­vinnu­skól­an­um 1927-28 og tók við búi for­eldra sinna 1936 og bjó þar til 1973. Hann missti sjón­ina 1946 en gekk þó sjálf­ur að hirðingu á sauðfé og kúm.
Hann var þjóðþekkt­ur maður á sinni tíð fyr­ir út­varps­er­indi og blaðaskrif. Þegar hann varð blind­ur hamlaði það skrif­um hans um hríð en svo lærði hann á rit­vél og gaf út sín­ar fyrstu bæk­ur eft­ir það. Eft­ir hann liggja a.m.k. sex bæk­ur og safn rit­gerða, meðal þeirra er Bréf úr myrkri frá 1961.
Skúli var vega­verk­stjóri í Bæj­ar­hreppi 1943-46, formaður Sjúkra­sam­lags Bæj­ar­hrepps 1943-46, sat í búnaðarráði 1945, formaður Verka­lýðsfé­lags Hrút­f­irðinga 1934-36 og formaður ung­menna­fé­lags­ins í Bæj­ar­hreppi í nokk­ur ár. Hann sat í flokk­stjórn Sósí­al­ista­flokks­ins.
Eig­in­kona Skúla var Þuríður Guðjóns­dótt­ir, f. 1908, d. 1963. Þau eignuðust fjög­ur börn. Skúli lést 20. júní 1986 á Hvammstanga.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.