Bréfin hennar Viktoríu # 89290
- Regulärer Preis
- 3.900 kr
- Angebotspreis
- 3.900 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Bréfin hennar Viktoríu. Inga Kristjánsdóttir tók saman og skráði.
Í byrjun síðustu aldar var stór og glaðvær systkinahópur að vaxa út grasi á Gýgjarhóli í Biskupstungum. Það var til þess tekið hvað Gýgarhólssystkinin voru mannvænleg, enda létu mörg þeirra snemma til sín taka þar í sveitinni í félags- og framfaramálum. Örlög þeirra urðu þó misjöfn, heilsuleysi og sjúkdómar hjuggu snemma skörð í þennan efnilega hóp og tvö systkinanna fluttust burt úr sveitinni, annað í fjarlægar heimsálfur.
Bréfin hennar Viktoríu rekja sögu þessara systkina allt frá því að fjölskyldan flutti búferlum að Gýgarhóli frá Þjórsárholti í Gnúpverjahreppi árið 1898. Tilviljun réði því að sendibréf sem fóru á milli systkinanna og vina þeirra hafa varðveist og er sagan rakin í gegnum þessi bréf, þótt einnig sé stuðst við fleiri heimildir. Auk þess að fylgja fjölskyldunni í gegnum gleði og sorgir, er bókin áhugaverð heimild um svitarbrag og áhugamál ungs fólks í uppsvetum Suðurlands fyrir um hundrað árum.
Höfundurinn Inga Kristjánsdóttir er dóttir eins af systkinunum frá Gýgarhóli og ólst þar upp frá unga aldri. Hún er bókasafns- og upplýsingafræðingur að mennt og hefur einnig lagt stund á þjóðfræði og sagnfræði. (Káputexti).