Ferð um Ísland 1809 # 90084
- Regulärer Preis
- 4.900 kr
- Angebotspreis
- 4.900 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Ferð um Ísland 1809. Eftir William Jackson Hooker. Arngrímur Thorlacius íslenskaði og annaðist útgáfuna.
Þetta er ferðasaga ungs, bresks grasafræðings, William Jackson Hooker, sem hingað kom með ensku kaupfari. Á þessum tíma var breska heimsveldið sennilega voldugasta ríki Evrópu, en Ísland að sama skapi einhver afskekktasti og aumasti útnári hennar. Þetta er því lýsing heimsmanns á framandi landi byggðu frumstæðu fólki skítugu, lúsugu, sjúku, trúræknu en svolítið hjátrúarfullu, bláfátæku en ótrúlega gestrisnu. Það er þó náttúran sem fangar hug hans, stórbrotin, hrjúf og dyntótt. Jörundur nokkur hundadagakonungur kom með sama skipi til landsins. Þetta var í stjórnartíð Napóleons og bandamenn hans Danir áttu í stríði við Breta. Íslendingar voru kúgaðir af dönskum nýlenduherrum sem voru í herkví Breta. Mitt í öllu saman stóð hinn danski ævintýramaður og Englandsvinur, kippti í spotta og ataðist. Jörundi hefur jafnan verið lýst sem trúði, en hvernig gat trúðurinn tekið öll völd í landinu? Hver var fíflið. (Bókatíðindi 2000).