Ferðapistlarnir og ljóðin # 91020
- Regulärer Preis
- 29,500 kr
- Angebotspreis
- 29,500 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Ferðapistlarnir og ljóðin. Skemmtiferð Milljónafélagsins í júlímánuði 1997, um Rangárvallahrepp og nágrenni. Þ. B. skrásetti.
Samkvæmt formála eru þessir félagsmenn Milljónafélagsins á ferð; Fíkniefnaframleiðendurnir og turtildúfurnar Ævar og Ibbý, þjóðskáldið Arnar Pells (einnig þekktur sem Kaj eða Addi pungur) og ritari hans, kotbóndinn Þ. B. með konu sinni Sólveigu Sigríði, sem áður var kennd við Möðruvelli í Hörgárdal og kölluð Eyjafjarðarsól, en heitir nú Bolholts-Solla, hrossaprangarinn Helgi króna (í Sviss þekktur undir nafninu Helgi franki), stjórnmálaskörungurinn Reykjadals-Stína og maður hennar hrossadoðranta- og ættfræðiskáldið Jónas Kristjánsson. Fararstjóri var Kaldbaksbóndinn Viðar, kunnur af störfum sínum sem baðvörður í Strútslaug, einnig frú Sigríður Lödubílstjóri. Síðar bætist í hópinn eiginkona Adda pungs. Allt valinkunnugt sómafólk.
Ferðasaga þessi er að mestu í bundnu máli.
Gott eintak, bundið á gorm. Aðeins gert í örfáum eintökum og finnst ekki á www.leitir.is