Frá Hlíðarhúsum til Bjarmalands # 62427

Regulärer Preis
1.900 kr
Angebotspreis
1.900 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Hafnarfjörður
Date
1979
Condition
Binding
Frá Hlíðarhúsum til Bjarmalands. Hendrik Ottósson rekur minningar sínar.
Hendrik segist fæddur í Vesturbænum í Reykjavík 8. október, og skrifar Vesturbænum með stórum staf.
Í umsókn sinni fyrir inntöku í Blaðamannafélagið tíundar Hendrik tíundar helstu æviatriði sín af nokkurri gamansemi í umsókn sinni.
„Um Hendrik er er fátt gott að segja, en margt misjafnt. Það skásta er:
Tók fremur lélegt súdentspróf (haud illaud.), ennþá lélegra examen philosophicum (illaud). Var flestum kennurum til angurs. Föndraði frá æsku við stjórnmál. Var fyrst í Sjálfstæðisflokknum gamla, en gekk svo 1917 í Alþýðuflokkinn og var í honum til hausts 1930, er Kommúnistaflokkurinn var stofnaður. Stundaði nám í Kaupmannahöfn og síðar í Reykjavík. Fór til Rússlands árið 1920. Samdi rit, Ávarp til ungra alþýðumanna, 1923 og annað, Einar Nielsen, 1924. Hvort tveggja nauða ómerkileg plögg. Fékkst við málakennslu í Reykjavík 1926-1940 og þótti heldur góður kennari þótt sjálfur segi frá. Lenti í „ástandinu“ snemma árs 1941, fyrst hjá Hans Hátign Georgi VI og síðar hjá Franklin D. Roosevelt og var innsti koppur í búri hjá honum og að honum látnum hjá Harry S. Trumanni. Hóf starf á Fréttastofu útvarpsins eins og frá er skýrt. Hefi skrifað fjórar bækur síðan, Frá Hlíðarhúsum til Bjarmanlands (1948), Gvendur Jóns og ég (1949), Gvendur Jóns stendur í stórræðum (1950) og Vegamót og vopnagnýr (1951). Fleira verður ekki talið.“

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.