Gísli á Hofi vakir enn # 91157
- Regulärer Preis
- 3,900 kr
- Angebotspreis
- 3,900 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Gísli á Hofi vakir enn. Saman hafa tekið og skrá Jón Torfason og fleiri.
Gísli fæddist 18. mars 1920 í Sauðanesi í Ásum í Austur-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru Sesselja Þórðardóttir húsmóðir og Páll Jónsson, bóndi í Sauðanesi.
Gísli stundaði nám við Bændaskólann á Hólum og var í tíu ár bóndi í Sauðanesi.
Hann hóf búskap á Hofi í Vatnsdal 1949 og hefur búið þar síðan. Hann hefur rekið Bókaútgáfuna á Hofi frá 1988 og gaf meðal annars út niðjatöl, bækur um húnvetnskar laxveiðiár, hrossarækt og íslensk húsdýr.
Hann var í hreppsnefnd Áshrepps í tuttugu ár, um tíma oddviti og var formaður byggingarnefndar Húnavallaskóla. Hann var í stjórnum búnaðarfélaga, veiðifélaga, Sögufélags Húnvetninga, Skógræktarfélags A-Hún. og sat á Búnaðarþingi.
Hann tók þátt í undirbúningi að stofnun Hólalax og var þar í stjórn, formaður skólanefndar Bændaskólans á Hólum og Hitaveitu Hjaltadals.