Grámosinn glóir # 63347
- Regulärer Preis
- 2.900 kr
- Angebotspreis
- 2.900 kr
- Regulärer Preis
Ausverkauft
- Stückpreis
- pro
Grámosinn glóir. Skáldsaga eftir Thor Vilhjálmsson.
Hún reis á fætur án þess að sleppa taki á honum, og þegar handleggur hans féll slakur utanaf henni kastaði hún sér í fangið á honum, og tróð fæti milli samspenntra knjáa hans, og brauzt milli fóta honum með læri sitt; og kyssti hann ofsalega á hálsinn, án þess að hugsa að þar myndi marka fyrir; og þandi sig með kossum sínum um andlit hans allt; og þegar hún ætlaði að kyssa á augnalok hans, þá voru augun opin einsog hann væri búinn til að horfa inní leynda staði í myrkum hellum, eða skútum í ógnþrungnu bergi, hún snart augu hans varlega með tungu sinni. Hún nam þá bragðið af þessum skyggnu ellegar blindu starandi augum ástvinar síns, meðan í djúpi hennar ómaði hrópið þögla sem bar nafn hans, og fyllti þessa miklu kirkju; og var svo sárt svo sárt, - það hlyti að hræra guð til að ganga útúr flokki höfðingjanna, og skilja þá eftir við máttlaus mótmæli og hneykslunaróp og vandlætingarsvip, og koma til að líkna þeim og fyrirgefa, og leyfa þeim það sem þeim var helgast, hvað sem hver segði; hvað sem þeir segðu sem voru alltaf utaní honum með þrástagl og ísmeygilegan málflutning nöldur og smjaður. Hún færðist í þessu kossafálmi að munni hans. En varir hans voru luktar og kaldar, einsog hann ætti engan vilja, sem hún gæti vakið og valdið. Engan vilja sem hún gæti numið í sitt vald, og stýrt.