Hinumegin við sólskinið # 65576

Regulärer Preis
2.900 kr
Angebotspreis
2.900 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Reykjavík
Date
1990
Condition
Binding
Hinumegin við sólskinið. Gedichte von Elías Mar.


Mamma





Lítill kútur feitur


með sosum enga ló á kolli og ekki farinn að ganga


fálmar smáum puttum útí rökkrið


einu sinni enn


og segir þetta eina orð sem hann kann.





En hann fær ekki það svar sem hann væntir


því að hún mamma hans er farin,


endanlega farin,


og hann finnur ekki þetta mjúka og gjafmilda


sem hann þráir að geta


þrýst að tannlausum munni og sogið … sogið …





Þess vegna kallar hann ekki oftar,


heldur hvíslar


í hinzta sinn þessu eina veika orði:


Mamma …





Lítill kútur feitur


bersköllóttur


aldinn að árum, hættur að geta gengið


og kominn endanlega í kör


fálmar kubbslegum puttum um sængina sína eirðarlaust


og hefur ekki sagt eitt orð í mörg dægur.





Sjúkrahúspresturinn leggur sefandi hönd


á feita puttana.


Þá róast lítill kútur


og stynur alsæll:


Mamma!

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.