Hljómboðar # 90740
- Regulärer Preis
- 6,900 kr
- Angebotspreis
- 6,900 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Hljómboðar. Eftir Þórarinn Jónsson frá Háreksstöðum.
Hér eru Hljómboðar Þórarins, þrjú hefti.
Þórarinn Jónsson var fæddur á Háreksstöðum í Jökuldalsheiði 15. september 1873. Foreldrar hans voru Jón Benjamínsson, bóndi þar, og fyrri kona hans Guðrún Jónsdóttir.
Þórarinn ólst upp í föðurhúsum og naut eigi annarar mentunar en þar var fáanleg og lögskyld var til fermingar. Hugur hans hneigðist snemma til söngs, og hafði hann í æsku fagra söngrödd, en lagði litla rækt við hana síðar. Innan við tvítugs aldurs fékk hann sér stofuorgel, og var fyrsti kennari hans Kand. Vigfús Þórðarson, síðar prestur í Eydölum, og tileinkar Þórarinn honum eitt lagið í einu af söngheftum sínum. Síðar naut hann tilsagnar hjá Magnúsi Einarssyni á Akureyri og Brynjólfi Þorlákssyni í Reykjavík.
Sumarið 1903 flutti Þórarinn vestur um haf og átti heima í Winnipeg í næstu 20 ár. Rak hann þar ýmist matvöruverslun eða rakara og hárskurðarstofu. Í mörg ár lék hann á orgelið í Unítarakirkjunni og stjórnaði þar kirkjusöng. Vorið 1923 fór hann vestur að Kyrrahafi og bjó lengst um í Seattle, Wash., næstu 8 ár. Þar sá hann og um kirkjusöng um lengri eða skemri tíma. Síðustu ár hans þar var fjárkreppan í almætti sínu og rán, þjófnaður og gripdeildir daglegir viðburðir. Fór Þórarinn ekki varhluta af því, og svifti hann því tjöldum og fór alfari heim til Íslands. Settist hann að á Seyðisfirði og átti þar heima til dauðadags. Hann andaðist þar 21. jan. 1941. Þórarinn var ókvæntur alla ævi.
Góð eintök, óbundin.