Í Unuhúsi # 89778

Regulärer Preis
9.500 kr
Angebotspreis
9.500 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Reykjavík. Mál og menning, 1962.
Date
Condition
Binding

Í Unuhúsi. Fært í letur eftir frásögn Stefáns frá Hvítadal hefir Þórbergur Þórðarson. 
Í Unuhúsi er stórkostleg lýsing á lífi skálda og annara skjólstæðinga mæðgnana við Garðastrætið.
,,Af drykkjuskap Jóakims er það sannast að segja, að hann var sífullur allan sólarhringinn, á meðan hann dvaldist í Unuhúsi. Jóakim var alltaf á ferð og flugi. Hann var kurteis maður og kvensamur. Allar stúlkur kallaði hann elsku yndið sitt. Jóakim þjáðist af lekanda. Hann kvartaði sáran undan þeim sjúkdómi, hve þrálátur hann væri og hvimleiður. Lekandann mun hann hafa fengið af vinnukonu Unu, Friðbjörgu að nafni. Friðbjörg þessi var kynjuð austan úr sýslum. En þá var hún opinber skækja í Reykjavík og stallsystir Guddu gröðu. Verður Friðbjargar getið nánar síðar.
Jóakim svaf hjá Friðbjörgu öllum nóttum þær þrjár vikur, sem hann var í Unuhúsi. Þrjá daga samfleytt varð hann að liggja í rúminu vegna lekandans. Vitjaði hans þá læknir. Hendrik Erlendsson læknanemi minnir mig það væri. Hann bannaði Jóakim að hafa afskipti af kvenfólki. En það mikils mat Jóakim læknisráðið, að venjulega tók hann Friðbjörgu sína upp í til sín, að læknisskoðun lokinni. Það bar við nokkrum sinnum, að Una kom að þeim í bælinu. Dreif hún þá Friðbjörgu á fætur með vorkenningum og fyrirbænum, en sagði okkur hinum, að aldrei á ævi sinni hefði hún þekkt önnur eins vandræðasvín. Lauk hún máli sínu venjulega á þessa leið: ,,Þetta er meiri aumingjaskapurinn. Þetta eru brjóstumkennanlegar manneskjur." 

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.