Icelandic ice mountains # 78047
- Regulärer Preis
- 4.900 kr
- Angebotspreis
- 4.900 kr
- Regulärer Preis
Ausverkauft
- Stückpreis
- pro
Draft of a physical, geographical, and historical description of Icelandic ice mountains on the basis of a journey to the most prominent of them in 1792-1794 with four maps and eight perspective drawings. By Sveinn Pálsson. An annotated and illustrated English translation Richard S. Williams, Jr., and Oddur Sigurðsson, editors.
Þetta merkasta rit Sveins Pálssonar (1762-1840) náttúrufræðings, er ítarlegasta og besta rit um jökla sem skrifað var á 18. öld, og raunar langt fram eftir þeirri 19. Ekki verður fjallað um alþjóða vísindasögu 18. aldar sem skyldi nema unnt sé að glöggva sig á framlagi Sveins. Hefði ritið komið út upp úr 1795 er líklegt að Sveinn hefði verið kallaður faðir jöklafræðinnar. Jarðfræðingar hafa á síðustu áratugum enduruppgötvað margt sem Sveinn benti á en ekki hefur komist á framfæri fyrr en nú. Jöklaritið er hér gefið út á ensku, þýtt af nákvæmni úr dönsku og yfirfarið af valinkunnum náttúruvísindamönnum. Þar er einnig minnst frumkvöðla jöklarannsókna á Íslandi auk Sveins þeirra Þórðar Þorlákssonar Vídalín, Þorvalds Thoroddsen, Jóns Eyþórssonar, Sigurðar Þórarinssonar og Sigurjóns Rist. Ljósmyndir af staðháttum eru birtar í ritinu og myndir og kort Sveins eru borin saman við nútíma efni. Með útgáfu þessa rits nú er leitast við að vekja athygli á hinu merka framlagi Sveins Pálssonar til jöklafræði og þeim þætti sem íslenskir vísindamenn hafa lagt til alþjóða vísindasamfélagsins. (Bókatíðindi 2004)