Íþróttir hérlendis í alþjóðlegu samhengi # 91297

Regulärer Preis
4,900 kr
Angebotspreis
4,900 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Bifröst. Háskólinn á Bifröst, 2021.
Date
—
Condition
—
Binding
—

Íþróttir hérlendis í alþjóðlegu samhengi. Eftir Dr. Ágúst Einarsson.
Í bókinni er sögu íþrótta lýst og sagt frá fjölda íþróttafólks, innlendu sem erlendu.
Íþróttir hérlendis eru bornar saman við íþróttir í nágrannalöndunum.
Fjallað er um mikilvægi íþrótta fyrir börn og unglinga svo og fyrir eldri borgara en þeir byggðu upp íþróttahreyfinguna, stærstu fjöldasamtök Íslendinga.
Greint er frá skipulagi íþrótta og tengslum við alþjóðavæðingu og heilbrigðismál en íþróttir hafa mikið forvarnargildi.
Sagt er frá mismunun og misnotkun í íþróttum, sem er mikil og mun meiri en fólk heldur.
Fjárhagsleg umsvif íþrótta eru greind og framlag íþróttageirans til landsframleiðslu er metið en slík greining hefur ekki verið gerð áður. Íþróttir eru mikilvægur þáttur í lífskjörum landsmanna.
Dr. Ágúst Einarsson er prófessor emeritus, fyrrverandi rektor og alþingismaður. Ágúst hefur skrifað fjölda bóka. Í bókarlok eru lagðar fram tólf tillögur til að efla íþróttir hérlendis en íþróttir verða ein mikilvægasta efnahagsaðgerð framtíðarinnar. Bókin er tæpar 300 bls. og Háskólinn á Bifröst gefur bókina út.
Bókin er tileinkuð eldri borgurum sem lögðu grunn að öflugu íþróttastarfi Íslendinga og frábærum árangri á erlendum vettvangi.
Efni bókarinnar er sem hér segir: - Kafli 1: Umgjörð og söguleg þróun -- Kafli 2: Helstu íþróttagreinar hérlendis -- Kafli 3: Iðkun, áhorf, menntun og fjölmiðlun -- Kafli 4: Hugtök til skýringar og greiningar -- Kafli 5: Skipulag, þátttaka aldurshópa og heilbrigðismál -- Kafli 6: Alþjóðavæðing, stjórnmál, misnotkun og mismunun -- Kafli 7: Hagræn áhrif og framlag íþrótta til landsframleiðslu -- Kafli 8: Samantekt og tillögur.

Gott eintak, forlagsband. Áritað til eins helsta íþróttamanns þjóðarinnar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.