Kvennafræðarinn # 90360
- Regulärer Preis
- 19,500 kr
- Angebotspreis
- 19,500 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Kvennafræðarinn. Samið hefur Elín Briem. Fyrra hepti. Um matreiðslu m.m.
Já hér höfum við fyrra heptið af frumútgáfu Kvennafræðarans. Gagnmerkt grundvallarrit og ætti að vera til á hvurju heimili. En eins og áður sagði - hér er aðeins fyrra heptið.
Allgott en auðvitað lesið og handleikið eintak.
Kvennafræðarinn er bók um matreiðslu, hússtjórn og fleira eftir Elínu Briem, skólastýru Kvennaskólans á Ytri-Ey á Skagaströnd og stofnanda Hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Bókin var ein fyrsta íslenska matreiðslubókin og hafði mikil áhrif á íslenska matargerð.
Þegar Elín Briem réðist í að skrifa bók sína seint á 9. áratug 19. aldar var engin matreiðslubók tiltæk á íslensku þótt tvær bækur hefðu raunar komið út áður, Einfalt matreiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur eftir Mörtu Maríu Stephensen (en í rauninni líklega að mestu eftir Magnús Stephensen mág hennar) árið 1800 og Ný matreiðslubók ásamt ávísun um litun, þvott o.fl. eftir Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur, sem út kom 1858. Hvorug náði mikilli útbreiðslu svo að einu matreiðslubækurnar sem íslenskar húsmæður áttu kost á voru danskar, svo sem matreiðslubók maddömu Mangor, sem var mikið notuð hér á landi en miðaðist við danskar aðstæður.
Elín stýrði skólanum á Ytri-Ey 1883-1895 og hefur við gerð bókarinnar án efa nýtt sér efni sem hún hefur útbúið til kennslu í skólanum auk þess sem hún hefur viðað að sér í húsmæðrakennaranámi sínu í Kaupmannahöfn á árunum 1881-1883. Um þrír fjórðu bókarinnar er mataruppskriftir en einnig er fjallað um næringu og heilsu, hreinlæti og þrif, þvotta og fleira. Kvennafræðarinn kom út um áramótin 1888-1889 og náði strax miklum vinsældum seldist strax í 3000 eintökum og var endurprentuð fjórum sinnum, síðast 1911. Bókin hafði veruleg áhrif á íslenska matargerð og einnig á hússtjórn, hreinlæti og margt annað.