Ljóðmæli eftir Herdísi og Ólínu # 88971
- Regulärer Preis
- 6.900 kr
- Angebotspreis
- 6.900 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Ljóðmæli eftir Herdísi og Ólínu Andrjesdætur.
Herdís og Ólína Andrésdætur fæddust í Flatey á Breiðafirði 13.6. 1858, dætur Andrésar Andréssonar í Flatey og Sesselju Jónsdóttur.
Herdís og Ólína gáfu út Ljóðmæli saman 1924 og aftur 1930 en heildarsafn ljóða þeirra kom út í litlu upplagi 1976, endurútgefið 1980 og 1982. Í bókmenntasögunni er þeirra systra líka oftast getið saman, enda oft örðugt að greina á milli. Yrkisefni þeirra eru lík eins og sjá má í gamankvæðum og kvæðum um hversdagslífið, þar sem hvor botnar kvæði annarrar. Ólína var hins vegar afkastameiri og kvæði hennar fjölbreyttari að formi og efnistökum. Hún leit á sig sem skáldkonu og hélt auk þess til haga frásögnum, þjóðlegum fróðleik og þjóðsögum.
Kvæði þeirra systra eru oft minningarkvæði, ljóðabréf, ort í tilefni af jólum og afmælum, og oft eftir óskum annarra, enda voru þær hagyrðingar miklir.