Maðurinn sem Ísland elskaði. Paul Gaimard og Íslandsferðir hans 1835-1836 # 90378.

Regulärer Preis
3,900 kr
Angebotspreis
3,900 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Reykjavík. Mál og menning, 2019.
Date
Condition
Binding

Maðurinn sem Ísland elskaði. Paul Gaimard og Íslandsferðir hans 1835-1836. Eftir Árna Snævarr.
Paul Gaimard átti tvær heimsreisur að baki þegar hann kom eins og stormsveipur til Íslands sumrin 1835 og 1836. Hér stýrði hann mestu vísindaúttekt sem gerð hafði verið á þessari eyju sem fáir þekktu og lét teikna myndir sem gefa einstaka innsýn í lífið á Íslandi á þessum tíma. Gaimard vann hug og hjörtu landsmanna með því að læra íslensku og sýna þeim einlægan áhuga. En þrátt fyrir að hafa verið þekktur maður á sinni tíð eru bæði hann og leiðangrar hans að mestu gleymdir.
Í Maðurinn sem Ísland elskaði er saga þessara stórmerku leiðangra rakin og jafnframt sagt frá ævintýralegu lífshlaupi á tímum mælinga heimsins. Byggt er á ýmsum gögnum sem aldrei hafa komið fyrir almenningssjónir áður, þar á meðal dagbókum Gaimards, og dregin upp ljóslifandi mynd af fólki, stöðum og heimssögunni á fyrri hluta nítjándu aldar. Um eitt hundrað myndir prýða bókina.
Árni Snævarr lærði sögu í Frakklandi og á Íslandi, stundaði blaðamennsku um árabil og hefur undanfarin ár unnið hjá alþjóðastofnunum og er nú búsettur í Brussel. Við vinnslu bókarinnar kannaði hann frönsk skjalasöfn og heimsótti helstu staði sem við sögu koma á Íslandi og í Frakklandi.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.