Magnús Ólafsson ljósmyndari # 90141
- Regulärer Preis
- 6,900 kr
- Angebotspreis
- 6,900 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Magnús Ólafsson ljósmyndari - photographer. Ritstjóri María Karen Sigurðardóttir. Megintexti Eiríkur Guðmundsson. Þýðing Anna Yates.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur kynnir útgáfu á ljósmyndabókinni Magnús Ólafsson ljósmyndari. Gefin út í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Magnúsar Ólafssonar þann 27. sept. til 1. des. 2003 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í þessari veglegu bók sem kostuð er af afkomendum þessa merka ljósmyndara er að finna 108 ljósmyndir eftir Magnús í gæðaprentun, teknar á fyrstu þremur áratugum 20. aldarinnar. Ljósmyndir hans vega salt á milli heimildagildis og ævintýris og veita okkur einstæða sýn inn í horfinn heim og bregða upp svipmyndum frá tímabili sem samhliða tækniframförum einkenndist af þjóðfélagsbreytingum og þróun borgarsamfélags í Reykjavík. Auk ljósmyndanna er að finna í bókinni greinar eftir Eirík Guðmundsson útvarpsmann og Guðmund Ingólfsson ljósmyndara. Bókin verður til sölu í helstu bókabúðum landsins og einnig má nálgast hana á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. (Bókatíðindi 2003).