Þórðar saga Geirmundarsonar # 70385
- Regulärer Preis
- 9.500 kr
- Angebotspreis
- 9.500 kr
- Regulärer Preis
Ausverkauft
- Stückpreis
- pro
Þórðar saga Geirmundarsonar, færð í letur eptir sjálfs hans fyrirsögn og nú nákvæmlega gefin út eptir þeim beztu handritum er fengizt gátu af Benedikt Gröndal.
Í þann tíma er Haraldur hárfagri réð Noregi, bjó sá maður í Orkadal, er Geirmundur hét; hann var hersir að nafnbót og höfðu langfeðgar hans verið jarlar og aldavinir Ingjalds hins illráða. Var Haraldi konungi því kalt í skapi til þeirra frænda, enda undi Geirmundur illa ofríki konungs, þótt eigi mætti hann rönd við reisa.
Geirmundur átti fjölda barna, og voru þá á unga aldri, er saga þessi gerðist. Einn son átti Geirmundur, er hann hafði getið í æsku eitt sinn er hann fór til Bjarmalands; sá hét Þórður, og var miklu eldri en hin önnur börn Geirmundar. Þórður var mikill maður vexti, hár og digur, baraxlaður og herðabreiður, svartur á hár og skegg, fölleitur í andliti og úteygur og að öllu hinn hermannlegasti. Hann hafði verið stafnbúi Haralds konungs í Hafursfjarðarorrustu, en lenti í áflogum við Guttorm sindra, gamlan vin konungs, og fyrir það fékk hann óvirðingu af konungi og fór aftur í fússi til óðala sinna.
Einhvern dag kom Þórður að máli við föður sinn, kvað sér vera leitt heima að sitja og ekki hafast að: „Segir mér svo hugur um, að ég muni nokkura frægð hljóta í útlöndum, og fýsir mig að kanna siðu annarra þjóða. Þykir mér enginn slægur í að þola ánauð af konungi þessum, er hér gengur sem logi yfir akur“.