Ritsafn Eiðs Guðmundssonar á Þúfnavöllum # 89569
- Regulärer Preis
- 9.500 kr
- Angebotspreis
- 9.500 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Ritsafn Eiðs Guðmundssonar á Þúfnavöllum.
* 1. bindi. Mannfellirinn mikli. Árni J. Haraldsson bjó bókin undir prentun og ritar um höfundinn.
* 2-4. bindi. Búskaparsaga í Skriðuhreppi forna. Höfundur rekur söguna bæ af bæ. Mikill fróðleikur.
Eiður Guðmundsson fæddist 2. október 1888 í Sörlatungu í Hörgárdal. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Guðmundsson, f. 1855, d. 1947, hreppstjóri á Þúfnavöllum í Hörgárdal, og Guðný Loftsdóttir, f. 1861, d. 1952.
Eiður varð búfræðingur frá Hólum 1906 og var bóndi á Þúfnavöllum 1917-1950, og var búsettur þar síðan, og hreppstjóri í Skriðuhreppi 1935-1972. Hann var sýslunefndarmaður 1933-1974 og oddviti hreppsnefndar 1916-1922. Hann var í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga 1950-1960. Hann kom á fót lestrarfélagi í Skriðuhreppi 1910 og fóðurbirgðafélagi 1922. Hann var formaður búnaðarfélagsins þar í sveit í mörg ár og var lengi formaður skólanefndar. Hann sat í stjórn Framsóknarfélags Eyfirðinga 1948-1960.
Eiður safnaði ýmsum fróðleik um sveitina sína og komu út margar bækur eftir hann, m.a. Búskaparsaga Skriðuhrepps forna, sem er með þeim skemmtilegri af þessum toga.