Spegilskrift # 23817
- Regulärer Preis
- 5.900 kr
- Angebotspreis
- 5.900 kr
- Regulärer Preis
Ausverkauft
- Stückpreis
- pro
Spegilskrift. Ljóð eftir Gunnar M. Magnúss.
Í Þjóðviljanum 23.06. 1959 er sagt frá Spegilskrift Gunnars M. Magnúss. Þar segir "Spegilskrift, ný formbyltingar ljóðabók, kemur út í dag.
Mörg nýstárleg ljóðabók hefur komið út undanfarið en
líklega er „Spegilskrift", eftir Gunnar M., sem kemur
út í dag, nýstárlegri en allar hinar, og er ekki annað
að sjá við fyrstu sýn en hér sé um mikla formbyltingu
að ræða. Er það til marks um róttækni formbyltingar bókarinnar
að titilkápa og forsíða er aftast í bókinni, og hefst þar blaðsíðutal, en það mun fyrri formbyltingarskáldum íslenzkum ekki hafa hugkvæmzt.
En það skyldi þó ekki vera
að nýr tónn væri í bókinni mitt
í allri formbyltingunni ? Eitt
ljóðið er þannig:
VINDUR
Þú, sem vindurinn hæðir,
þú, sem ert hin veikasta
veraldarurt,
sem vindurinn hæðir
— og hæðir
— og hæðir.
Biddu drottinn guð þinn
um hríðskotabyssu
og skjóttu vindinn.
„Spegilskrift" kemur í bókaverzlanir í dag."