Undir mánans fölu sigð # 90887

Regulärer Preis
3,900 kr
Angebotspreis
3,900 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Reykjavík. Skrudda, 2020.
Date
—
Condition
—
Binding
—

 Undir mánans fölu sigð. Ljóð eftir Pjetur Hafstein Lárusson.
Gott eintak, óbundið og áritað.
Þessi sextánda ljóðabók Pjeturs Hafsteins Lárussonar veitir innsýn í hugarheim skáldsins og sýnir enn einu sinni sterk tök hans á fallegum, ljóðrænum stíl, hnitmiðuðu myndmáli sem oft opnast fyrir lesandanum sem litríkt málverk.
Bókartitill, Undir mánans fölu sigð, höfðar einkum til fyrsta kaflans, Mánaljóð, sem fyllir nær helming bókar. Þessi kafli er undir áhrifum gullaldar kínverskrar ljóðagerðar, Tangtímabilsins, sem Pjetur þekkir vel. Þá ortu skáldin gjarnan mánaljóð og ófu inn í þau víndrykkju og holdsins lystisemdum. Í mánaljóðum Pjeturs er máninn vissulega mótleikari mælanda, auðmjúkur, skilyrðislaus, persónugerður vinur. Ýmist er hann fullur, hálffullur eða á ferð milli skýja, drykkjufélagi sem gott er að skála við bæði kvölds og nætur og hefur á valdi sínu skugga og ljós. Tengingin við þennan glókoll himnanna, silfurhnött, himnaskrögg, næturkyndil (sem Pjetur m.a. nefnir svo) er vínið. Ljóðin eru fallegar myndir. Þau bera með sér kyrrð og frið og söknuð einhvers sem gleymskan vermir.
Auk Mánaljóða inniheldur bókin fjóra aðra kafla: Af skáldum, Gengnir vinir, Slóð tímans og Prósaljóð um mannlífsins kræklóttu stíga. Þeir kaflar gefa okkur aðra mynd af skáldaheimi Pjeturs, sem er fjölbreyttur og víða komið við. Vonandi ratar þessi bók í hendur sem flestra er unna góðri ljóðlist. 

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.