Upphaf allsherjarríkis á Íslandi og stjórnskipunar þess # 88968
- Regulärer Preis
- 29.500 kr
- Angebotspreis
- 29.500 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
Upphaf allsherjarríkis á Íslandi og stjórnskipunar þess eftir próf. Dr. Konrad Maurer. Íslenzkað af Sigurði Sigurðarsyni.
Ritið nefnist á frummálinu: Die Entstehung des isländischen Staats und seiner Verfassung.
Konrad Maurer var fæddur í Rínarlöndum 29. apríl 1823 í Frankenthal í Pfalz sem þá heyrði undir Bæjarakonung. Forfeður hans voru prestar, bændur og kalvínistar. Hugur hans hneigðist til náttúruvísinda, einkum steinafræði, en að ósk föður síns lærði hann lögfræði. Einnig hafði hann áhuga á sögu og málvísindum. Árið 1847 verður Maurer háskólakennari aðeins 24 ára gamall. 1852 kemur út bók hans "Upphaf alsherjarríkis á Íslandi og stjórnskipunar þess". 1855 leitar Jón Sigurðsson í smiðju til Maurers og ber undir hans álit deilur sínar og danska lögfræðingsins Larsens. Maurer skrifar Jóni bréf 10. júní 1856 og þar með hefst ævilöng persónuleg vinátta þeirra. Eftir þetta er Maurer einn helsti ráðunautur Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga.
Gott eintak í góðu bandi.