Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi # 75237

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1952
Condition
Binding
Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Doktorsrit Guðna Jónssonar.
Guðni fæddist á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, sonur fátækra hjóna sem áttu 17 börn alls. Hann ólst upp í Leirubakka á Landi til tólf ára aldurs, fór þá að vinna og reri seinna tvær vertíðir en tókst svo að brjótast til mennta, gekk í kvöldskóla í Reykjavík, lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg 1921 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1924. Hann stundaði síðan háskólanám, fyrst í guðfræði en hóf síðan nám við norrænudeild Háskólans og kenndi með námi. Hann varð magister í íslenskum fræðum 1930 og fjallaði meistaraprófsritgerð hans um Landnámu, samanburð Landnámuhandrita innbyrðis og við aðrar heimildir.
Guðni kenndi við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928-1945 en varð þá skólastjóri sama skóla. Hann var mikilvirkur fræðimaður, einkum á sviði ættfræði og sagnfræði, og skrifaði fjölda rita, þar á meðal doktorsritgerð sína, Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi, sem út kom 1952 og hann varði svo ári síðar. Einnig samdi hann ritin Bergsætt, Sögu Hraunshverfis á Eyrarbakka, Stokkseyringa sögu og fleiri rit. Hann annaðist einnig útgáfur fjölda fornrita, meðal annars Íslendingasagna I-XII, sem út komu 1946-1947, Fornaldarsagna Norðurlanda og margra annarra rita. Einnig annaðist hann útgáfu á ritum Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi og fleiri alþýðufræðimanna og gaf út Íslenska sagnaþætti og þjóðsögur I-XII.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.