H-listinn. Kosningablað # 43052

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Reykjavík
Date
1962
Condition
Binding
H-listinn. Kosningablað. 1. – 2.tölublað, 1.árgangur, 1962. Kosningablað H-listans, lista óháðra bindindismanna við borgarstjórnarkosningar 1962. Aðeins komu út þessi tvö tölublöð.

Óháðir bindindismenn var óformlegt heiti á framboði bindindismanna við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík árið 1962. Listinn hlaut tæplega 900 atkvæði eða um 2,5% greiddra atkvæða og var langt frá því að fá kjörinn borgarfulltrúa.

Framboð bindindismanna átti skamman aðdraganda. Í byrjun árs 1962 sendi hópur áhugafólks um bindindismál erindi til allra stjórnmálaflokkanna þar sem farið var fram á að yfirlýstir bindindismenn yrðu í öruggum sætum, en að öðrum kosti yrði blásið til sjálfstæðs framboðs. Erindið hlaut dræmar undirtektir.

Framboðslisti var kynntur um mánuði fyrir kosningar. Í efsta sæti var Gísli Sigurbjörnsson forstjóri eilliheimilisins Grundar. Þar á eftir komu Benedikt Bjarklind stórtemplar, frú Sigþrúður Pétursdóttir og Loftur Guðmundsson rithöfundur.

Stefnuskrá framboðsins snerist nær einvörðungu um bindismál. Þar var þess krafist að borgarstjórn hætti að bjóða upp á vínveitingar í veislum, að hömlur á sölu áfengis væru auknar, fjárstuðningur til bindindissamtaka og að reist yrði ofdrykkjumannahæli.

Framboðið naut ekki formlegs stuðnings Góðtemplarahreyfingarinnar og lögðu málgögn Sjálfstæðisflokksins ríka áherslu á að eðlilegra væri að bindindismenn fylktu sér á bak við Sjálfstæðismenn. Ekki varð framhald á starfsemi Óháðra bindindismanna að kosningunum loknum.

Góð eintök, óbundin. Fágæti.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.