Skiptidagar. Nesti handa nýrri kynslóð # 68719
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Skiptidagar. Nesti handa nýrri kynslóð. Eftir Guðrúnu Nordal.
Nýjar kynslóðir horfa inn í framtíð sem verður gjörólík okkar samtíma. Hvaða nesti – minningar, sögur og reynslu – munu þær taka með sér úr sagnasjóði fortíðarinnar?
Skiptidagar er persónulegt ferðalag höfundar um sögu Íslands og bókmenntir allt frá landnámi til okkar daga. Þar er spurt hvaða lærdóm við getum dregið af frásögnum aldanna um okkur sjálf og hvernig við getum miðlað þeim á nýrri öld. Höfundur leggur áherslu á sögur kvenna á öllum tímum og sækir alltaf samanburð til nútímans til að sýna að sagan er ein og allt tengist.
Guðrún Nordal er forstöðumaður Árnastofnunar og prófessor við Háskóla Íslands. Hún hefur unnið að rannsóknum á íslenskum miðaldabókmenntum í þrjátíu ár, og um árabil vann hún að mótun vísindastefnu hérlendis og á norrænum vettvangi.
Í bókinni fléttast þessi hugðarefni hennar saman.