Íslenzkir hestar og ferðamenn # 65611
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Íslenzkir hestar og ferðamenn. Ferðaminningar með leiðbeiningum eftir Guðmund Hávarðsson.
Undirtitill á kápu: Ísland sem ferðamannaland.
Bókin skiptist í þrjá kafla - I. Lesmál. - II. Myndir. - III. Auglýsingar.
Guðmundur Hávarðsson var fæddur árið 1861 austur á fjörðum. Hann fór ungur til Noregs og var þar vagnstjóri um árabil. Hestvagnar voru þá nær óþekktir á Íslandi og lærði Guðmundur því starf sem átti eftir að gera hann mikilvægann heima á Íslandi. Árið 1904 kaupir Guðmundur sér landskika úr Rauðarártúni við Reykjavík og reisir sér þar myndarlegt timburhús, langt utan við meginbyggðina. Það var Norðurpóllinn. Húsið stendur enn rétt ofan við Hlemm. Um heiti hússins - Norðurpóll - segir Guðmundur. "Ég finn því ekkert heppilegra nafn á það við eiga en að kalla það "Norðurpólinn" og þannig líkja þessu byggingarstarfi mínu við þá fyrstu leiðangra er gerðir voru út fyrri part 18. aldar til þess að ná að Norðurheimskautinu."
Sumarið 1907 kom Friðrik konungur VIII í heimsókn til Íslands ásamt fríðu föruneyti og var mikið um dýrðir í Reykjavík. Farin var mikil ferð um Suðurland með konung og var keyptur til landsins skrautvagn til að flytja hann í. Hafði slíkur vagn aldrei sést hér áður. Þurfti nú að finna mann sem gæti stýrt slíku tæki og kom upp nafn Guðmundar Hávarðssonar sem hafði verið vagnstjóri í Ósló. Var hann svo ráðinn til að stýra vagni konungs sem sérstakur konunglegur hirðkúskur og var hann klæddur i tignarskrúða sem hæfa þótti þessu ábyrgðar embætti. Var það hempa, blá eða svört, silfurhneppt og silfurrennd og pípuhattur. Fór jafnvel svo að sumir villtust á honum og konungi. Bóndi einn í Mosfellssveit sagðist viss um að hafa séð konung þar sem hann stýrði skrautvagni sínum og þótti mikið til koma.