36 ljóð eftir Hannes Pétursson # 86818
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
36 ljóð eftir Hannes Pétursson.
Hannes Pétursson fæddist á Sauðárkróki 14. desember 1931. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952 og kandídatsprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1959. Hann stundaði nám í germönskum fræðum við háskólana í Köln og Heidelberg 1952 til 1954. Hannes vann við útgáfu hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs á árunum 1964-1976, var útgáfustjóri Smábóka Menningarsjóðs 1959-1969 og Alfræði Menningarsjóðs 1972-1976. Hann sat í ritstjórn Skagfirðingabókar, ársriti Sögufélags Skagfirðinga, á árunum 1966-1973.
Fyrsta bók Hannesar, Kvæðabók, kom út 1955. Hann hefur sent frá sér fjölda kvæða- og ljóðabóka síðan sem og smásagnasafn, fræðirit, greinar og ævisögur. Hann hefur einnig fengist við þýðingar, meðal annars þýddi hann Hamskiptin eftir Franz Kafka úr þýsku 1960. Hannes hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín á löngum ritferli. Hann var kjörinn heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands 1991 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1993 fyrir ljóðabókina Eldhylur.
Hannes var útnefndur Heiðurssveitungi Álftaness 2006.
Þú gekkst mér við hlið
Þú gekkst mér við hlið
að garði sofenda
vorkvöld þegar sólin
seig rauð til eyja.
Svo reikaði ég einn
hjá algrónum þúfum
og rýndi, fávís
þau rök: að deyja.
Línur sem ég kvað
um kvöldstund þessa
um leiðin og grasið
og gamlan nafna minn
þær lagðir þú allar
þér á ljóðelskt hjarta -
sem nú er komið
í næturstað sinn