Að laufferjum # 84559

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1972
Condition
Binding
Að laufferjum. Ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.

Ólafur Jóhann Sigurðsson fæddist að Hlíð í Garðahreppi, Gullbringusýslu, en ólst upp frá barnæsku á Torfastöðum í Grafningi. Foreldrar Sigurður Jónsson bóndi og hreppstjóri og Ingibjörg Þóra Jónsdóttir. Árið 1933, þegar Ólafur Jóhann Sgurðsson var 15 ára gamall, fluttist hann til Reykjavíkur staðráðinn í að gerast skáld.


Hann dvaldist í Kaupmannahöfn veturinn 1936 – 1937 og í New York veturinn 1943- 1944 þar sem hann sótti fyrirlestra um nútímabókmenntir og skáldsagnaritun við Columbia University.



Fyrsta bók Ólafs, skáldsagan Við Álftavatn, kom út 1934, þegar hann var 16 ára. Í henni birtir hann sögubrot þar sem hann styðst við endurminningar frá æskustöðvunum sínum.


Árið 1936 birtist í Æskunni vinsæl framhaldssaga eftir hann, Sagan um glerbrotið, sem síðar kom út sem bók 1970.


Ólafur skrifaði aðallega skáldverk, bæði sögur og ljóð, ætluð fullorðnum og hafa mörg þeirra verið þýdd á erlend tungumál, má þar nefna Spóa, Glerbrotið, Um sumarkvöld og Litbrigði jarðar.


Árið 1972 fékk Ólafur Silfurhestin, bókmenntaverðlaun dagblaðanna og 1976 hlaut hann bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir ljóðabækurnar Að laufferjum og Að brunnum.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.