Að norðan # 46109
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Að norðan. Ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Lofkvæði um kýrnar
Þær koma út úr fjósinu sínu, ein og ein,
með ólympískri ró, sveipaðar morgunljóma.
Í hverju spori er eins og þær stigi á stein,
og stynji af byrði þyngstu leyndardóma.
Þær ganga hægt, eins og heilögum dýrum ber,
og hirða ekki um neitt, sem kúasmalann varðar.
Enginn veit, hvað þær vilja eða hugsa sér,
hvort von þeirra stefnir til himins eða jarðar.