Það sefur í djúpinu # 84896

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1973
Condition
Binding
Það sefur í djúpinu. Skáldsaga eftir Guðberg Bergsson.

Guðbergur Bergsson er Grindvískur maður sem skrifar bækur. Skáldsagan, Tómas Jónsson, metsölubók, sem kom út árið 1966, vakti athygli sem tímamótaverk og er oft talin fyrsta móderníska skáldsagan á íslensku. Verk hans hafa verið þýdd á búlgörsku, dönsku, eistnesku, finnsku, frönsku, litháísku, norsku, spænsku og þýsku. Guðbergur er sérlegur heiðursborgari Grindavíkur.


Faðir Guðbergs starfaði sem sjómaður á veturna og trésmiður á sumrin í Grindavík þar sem Guðbergur ólst upp. Þegar Guðbergur fæddist stóð kreppan mikla yfir, og þótt að heldur hrörlegt hafi verið í Grindavík segir hann að andrúmsloftið hafi verið gott. Guðbergur vann við sjómennsku á yngri árum en útskrifaðist svo með kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands 1955. Því næst ferðaðist hann til Spánar þar sem hann útskrifaðist með próf í spænskum fræðum, bókmenntum og listasögu frá La Universidad de Barcelona árið 1958. Guðbergur starfaði á fyrri hluta tíunda áratugarins sem listagagnrýnandi hjá vikublaðinu Helgarpósturinn.


Árið 1992 kom út bókin Guðbergur Bergsson; metsölubók sem er eins konar viðtalsbók, og tilvísun í Tómas Jónsson, metsölubók, Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur við Guðberg. Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar, sem kom út 1997 er svo eins konar sjálfsævisaga Guðbergs. Guðbergur hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Svaninn árið 1991 og fyrir skáldævisöguna Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar árið 1997. Guðbergur hlaut Norræn verðlaun sænsku bókmenntaakademíunnar árið 2004. Guðbergur fékk Riddarakross Afreksorðunnar frá Spánarkonungi.


Árið 1994 var frumsýnt leikrit eftir Viðar Eggertsson sem hann skrifaði upp úr Tanga-bókum Guðbergs, "Það sefur í djúpinu", "Hermann og Dídí" og "Það rís úr djúpinu". Viðar leikstýrði sýningunni sjálfur og fékk Menningarverðlaun DV 1995 fyrir hvort tveggja. Þjóðleikhúsið sýndi verkið sem nefndist Sannar sögur af sálarlífi systra.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.