Æskustöðvar mínar # 91149

Regular
9,500 kr
Sale
9,500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
—
Date
—
Condition
—
Binding
—

Æskustöðvar mínar. Valgarð Briem segir frá. Hér segir Valgarð frá íbúum á Sóleyjargötu, Fjólugötu og Laufásvegi. Hann rifjar upp kynni sín af og segir frá jafnöldrum, eldri frúm og fyrirfólki. Einnig rekur hann aðeins byggingasögu nokkra húsa. Skemmtilegt hefti.
Valgarð Briem var fæddur 31. janúar 1925 í Reykjavík, sonur hjónanna Ólafs Jóhanns Gunnlaugssonar Briem og Önnu Valgerðu Valgardsdóttur Briem, f. Claessen.
Valgarð lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1945 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1950. Hann stundaði framhaldsnám í sjórétti og sjótryggingum í Lundúnum 1950-1951. Hann hlaut löggildingu sem niðurjöfnunarmaður sjótjóna 1951, málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 1943 og Hæstarétti 1971.
Valgarð var lögfræðingur Bæjarútgerðar Reykjavíkur 1951-1959 og jafnframt framkvæmdastjóri umferðarnefndar Reykjavíkur 1955-59. Forstjóri Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar var hann 1959-1966. Hann rak lögmannsskrifstofu í Reykjavík 1966-1996.
Valgarð var virkur í félagsmálum frá unga aldri. Hann var formaður Málfundafélags Verzlunarskóla Íslands 1942 og í stjórn Nemendasambands sama skóla 1946-1950, í stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík 1943-1949, og formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta 1947-1948. Hann sat í þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur 1963-1965 og formaður 1966-1967. Þá var hann formaður nefndar til að annast framkvæmd breytingar úr vinstri í hægri umferð og starfaði hún til 1969. Formaður Samtaka sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi 1969-1971, formaður Landsmálafélagsins Varðar 1972-1973. Í flokksráði Sjálfstæðisflokksins 1972. Varaborgarfulltrúi var hann fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík 1974-1986, formaður umferðarnefndar Reykjavíkur 1974-1978. Sat í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar 1974-1982 og gegndi formennsku þar þann tíma. Þá var hann formaður umferðarráðs 1986-1990. Hann var formaður Nemendasambands skíðaskólans í Kerlingarfjöllum um árabil. Valgarð var tekinn inn í Oddfellow-stúkuna nr. 5 Þórstein árið 1963 og var mjög virkur í starfi hennar. Hann var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar 1975.

Ljósrit, án útgáfuárs.
Gott eintak, óbundið. 

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.