Í ættlandi mínu # 35872

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Reykjavík
Date
1945
Condition
Binding
Í ættlandi mínu. Sögur af íslenzku fólki. Eftir Huldu.
Hulda (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind, ljóðskáld og rithöfundur. Hún sendi frá sér fjölda bóka en er þekktust fyrir þjóðhátíðarljóð sitt sem oftast gengur undir nafninu Hver á sér fegra föðurland og vann ásamt ljóði Jóhannesar úr Kötlum til verðlauna í ljóðasamkeppni sem efnt var til í tilefni af lýðveldisstofnuninni 1944. Hún átti líka stóran þátt í að endurvekja þulur sem bókmenntagrein.
Hulda var dóttir Benedikts Jónssonar bónda og félagsmálafrömuðar á Auðnum í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu og konu hans Guðnýjar Halldórsdóttur. Hún ólst upp hjá þeim á miklu menningarheimili, þar sem Bókafélag Þingeyinga var meðal annars til húsa, og hlaut góða menntun hjá foreldrum sínum og heimiliskennurum. Hún stundaði einnig nám í einkatímum í Reykjavík 1903-1904. Unnur giftist árið 1905 Sigurði Sigfússyni frá Halldórsstöðum í Reykjadal og tóku þau sér ættarnafnið Bjarklind. Sigurður var lengi kaupfélagsstjóri á Húsavík og bjuggu þau þar.


Unnur las alla tíð mikið og leitaði sér fróðleiks, meðal annars fór hún tvisvar í utanlandsferðir til að kynna sér menningu og hætti annarra þjóða, sem þá var fátítt að íslenskar húsmæður gerðu, fyrst til Englands og Danmerkur 1910-1911 og svo til Norðurlanda og Englands 1922. Hún dvaldi meðal annars um tíma hjá Íslandsvininum prófessor William A. Craigie í Oxford.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.