Afkastamikill mannvinur # 59939

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1976
Condition
Binding
Afkastamikill mannvinur. Starfssaga séra Sigurbjörns Á. Gíslasonar. Jón Kr. Ísfeld tók saman og skrásetti.
Sigurbjörn fæddist í Glæsibæ í Sæmundarhlíð 1.1. 1876, sonur Gísla Sigurðssonar, bónda þar og í Neðra-Ási í Hjaltadal, og Kristínar Björnsdóttur húsfreyju.


Eiginkona Sigurbjörns var Guðrún, alþm. og rithöfundur, dóttir Lárusar H. Halldórssonar, prófasts, alþm. og fríkirkjuprests í Reykjavík, og k.h., Kristínar Katrínar Pétursdóttur Guðjohnsen húsfreyju.


Sigurbjörn og Guðrún bjuggu að Ási við Ásvallagötu í Reykjavík en Guðrún fórst af slysförum, ásamt tveimur dætrum þeirra hjóna er bifreið rann út í Tungufljót 1938.


Meðal barna Sigurbjörn og Guðrúnar voru Lárus, borgarminjavörður og öðrum fremur stofnandi Árbæjarsafnsins; Gísli, forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, og Friðrik, stórkaupmaður í Reykjavík.


Sigurbjörn lauk stúdentsprófum frá Lærða skólanum í Reykjavík 1897, embættisprófi í guðfræði frá Prestaskólanum árið 1900 og fór víða um heim til að kynna sér trúmála- og líknarstörf. Hann starfaði að kristindómsmálum alla tíð, sinnti barnaguðþjónustum guðfræðinema 1897-1900 og síðar sunnudagaskólastarfi í Reykjavík í fjóra áratugi. Hann ferðaðist um landið í 30 sumur til að vekja áhuga á kristilegu sjálfboðastarfi, kenndi við Kvennaskólann, Barnaskóla Reykjavíkur, Æskulýðsskólann, Kennaraskóla Íslands, Verslunarskóla Íslands og Vélstjóraskóla Íslands. Hann stofnaði, ásamt Gísla, syni sínum, Elli- og hjúkrunarheimilið Grund og var heimilisprestur þar frá 1942 og til æviloka.


Sigurbjörn var ritstjóri kristilegra tímarita og sinnti ótal trúnaðarstörfum fyrir bindindishreyfinguna, kristniboð og á sviði líknarmála. Hann var formaður sóknarnefndar Dómkirkjunnar í 30 ár, sat í framkvæmdanefnd Stórstúku Íslands, var stjórnarformaður Sambands íslenskra kristniboðsfélaga og formaður Barnaverndarráðs. Hann hlaut margvíslega viðurkenningu frá íslenskum og erlendum félagasamtökum.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.