Þakkir # 76062
- Regular
- 2,900 kr
- Sale
- 2,900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Þakkir. Kvæði eftir Rósu B. Blöndals. Þetta er fyrsta bók Rósu B. Blöndals.
Rósa B. Blöndals hét fullu nafni Jóhanna Rósa Björnsdóttir Blöndal. Hún fæddist 20. júlí árið 1913 í Reykjavík.
Rósa nam í Héraðsskólanum á Laugarvatni og Kennaraskóla Íslands. Hún lauk kennaraprófi árið 1934 og starfaði síðan við kennslu og skólastjórn víða um land. Lengst af var Rósa kennari á Laugarvatni.
Rósa giftist séra Ingólfi Ástmarssyni og bjó lengst af með honum á Mosfelli í Grímsnesi. Frá árinu 1981 bjuggu hjónin á Selfossi en Ingólfur lést árið 1994.
Rósa vann mikið að ritstörfum; hún sendi frá sér bæði ljóð og lausamál, hélt erindi og birti greinar í blöðum. Einnig birtist eftir hana smásaga í Pennaslóðum árið 1959 en þar áttu tíu aðrar nafnkunnar konur stuttar sögur. Í viðtali frá árinu 1964 við þau hjónin talar Rósa hins vegar af mikilli hógværð um skáldskap sinn, vill ekki á hann minnast og kallar hann „barnabrek“ og „æskuóra.“ Það þurfi hæfileika til að skrifa segir hún. (www.skald.is)