Allt kann sá er bíða kann # 79471

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2017
Condition
Binding
Allt kann sá er bíða kann. Æsku- og athafnasaga Sveins R. Eyjólfssonar blaðaútgefanda. Silja Aðalsteinsdóttir tók saman og skráði.
Sveinn R. Eyjólfsson kemst Íslendinga næst því að vera „dagblaðamógúll“. Hann reisti Vísi úr rústum, stofnaði Dagblaðið þegar þeir Jónas Kristjánsson yfirgáfu Vísi með hvelli og gerði það að stórveldi, síðan DV, netmiðilinn Visir.is og Fréttablaðið. Sveinn er maðurinn sem bæði sameinaði málgögn félagshyggjuaflanna og bar ábyrgð á Eimreiðarklíkunni, og lengst af átti hann meirihlutann í Frjálsri fjölmiðlun sem var þá eitt helsta fjölmiðlaveldi landsins. Þrátt fyrir þetta hefur hann sjálfur verið huldumaður, sjaldan veitt viðtöl eða sést á myndasíðum glansblaðanna. Allt kann sá er bíða kann rekur viðburðaríka ævisögu Sveins, allt frá erfiðum æskuárum til glæsilegs ferils í íslensku viðskiptalífi. Sveinn er sjálfstæðismaður af hugsjón en var þó flokknum óþægur með því að berjast gegn stórfyrirtækjum sem voru í náðinni enda er öll einokun eitur í hans beinum. Umskipti urðu í lífi hans þegar Frjáls fjölmiðlun varð gjaldþrota árið 2002. Þá tóku við ár úrvinnslu sem einnig sýndu hvert efni er í manninum.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.