Alþingismaðurinn og dóninn # 50843

Regular
39.500 kr
Sale
39.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Reykjavík
Date
Condition
Binding
Alþingismaðurinn og dóninn. Kvæði eftir Kengon.
Þetta kvæði var frægt árin 1924-1925, fyrst meðal Hafnarstúdenta. Jón Helgason prófessor orti það um alþingismanninn Jakob Möller sem hafði orðið það á detta illa í það í Kaupmannahöfn þegar hann átti að tala á fundi hjá Stúdentafélaginu. Jóni var ekki vel við Jakob, gat verið dómharður um fólk, og færði vitaskuld mjög í stílinn. En kvæðið var óstöðvandi eftir að það hafði verið ort, það var gefið í Reykjavík undir yfirskriftinni Alþingismaðurinn og dóninn eftir Kengon. Það var síðan prentað í kvæðabókinni Úr landsuðri 1939. Jón felldi það út úr síðari útgáfum bókarinnar.


Þú alþingis gimsteinn, sem glóir og skín,

í gulli og reykelsi og myrru,

eitt augnablik hélt ég þig ódrátt og svín,

nú iðrast ég þvílíkrar firru.

Hve hróplegt það ranglæti að hugsa til þín,,

hve heimskuleg fjarstæða að gruna

jafnhófsaman öðling sem hatar allt vín

það hefði ég víst átt að muna!

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.