Á annarra grjóti # 54880

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Akureyri
Date
1949
Condition
Binding
Á annarra grjóti. Ljóð eftir Rósberg G. Snædal.
Rósberg G. Snædal var fæddur í Kárahlíð í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu, sonur hjónanna Guðna Sveinssonar og Klemensínu Klemensdóttur sem einnig bjuggu á Vesturá og í Hvammi þar í dalnum. Rósberg tók próf frá Reykholtsskóla 1941 og kennaranámskeið frá Háskóla Íslands 1944. Hann var búsettur á Akureyri frá 1941, verkamaður og skrifstofumaður þar en stundaði kennslu 1942–1944 og síðan aftur frá 1965, fyrst á Akureyri en síðast á Hólum í Hjaltadal. Rósberg gaf út eftirtaldar ljóðabækur: Á annarra grjóti 1949, 25 hringhendur 1954, Vísnakver 1956, Í Tjarnarskarði 1957, 101 hringhenda 1964, Gagnvegir 1979. Einnig ritaði hann og gaf út þætti og þáttasöfn og má þar nefna Stafnsrétt í stökum og myndum 1961 og Skáldið frá Elivogum og fleira fólk 1973. Þá gaf hann út smásögur og samdi efni fyrir útvarp. Einnig ritstýrði hann Verkamanninum um eins árs skeið, sat í ritstjórn ársritsins Húnvetnings og fékkst við bókaútgáfu. Ásamt Jóni B. Rögnvaldssyni safnaði hann og sá um útgáfu á Húnvetningaljóðum 1955.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.