Ansjósur # 54011

Regular
6,900 kr
Sale
6,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1991
Condition
Binding
Ansjósur. Ljóð eftir Braga Ólafsson.



Námskeið í Lissabon


til Dags Sigurðarsonar




Vegna skorts á lýsingarorðum fór einn barþjónninn á

Brasileira á námskeið í tungu sinni. Eftir þrjár vikur

þegar hann snéri aftur til starfa hafði allt tekið breyting-

um; eldri kona sem setið hafði við sama borð frá því

elstu menn mundu, og lesið í þykkri bók, var dáin, og í

stað andlitsmynda á veggjum var kominn spegill svo

djúpur að verð hafði hækkað á drykkjum. Þjónninn gat

ekki fundið eitt einasta orð til að lýsa því sem hann sá!

Eitt andartak fannst honum sem námskeiðið hefði verið

sóun á tíma og peningum en með hjálp starfsfélaga

sinna sættist hann á að nú væri lýsinga ekki þörf; námi

hans væri lokið og breytingunum myndi hann venjast

áður en vissi.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.