Argóarflísin # 67696
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Argóarflísin. Goðsaga um Jason og Keneif. Skáldsaga eftir Sjón.
Hér kynnast lesendur Valdimari Haraldssyni, rosknum Íslendingi sem hefur háleitar hugmyndir um áhrif fiskneyslu á menningarstig norrænna þjóða. Þetta er árið 1949 og Valdimar hefur orðið fyrir því óvænta láni að gerast farþegi um borð í dönsku flutningaskipi sem er á leið til Svartahafsins.
Meðal áhafnarmeðlima er lífsreyndur sjómaður, Keneifur að nafni. Að loknum kvöldverði segir hann skipsfélögum sínum söguna af því þegar hann sigldi með hinu sögufræga fleyi Argó, undir forystu Jasonar Esonarsonar, og tók þátt í hinni miklu glæfraför Argóarfara til Kolkis til að sækja gullna reyfið. Á leiðinni þangað höfðu sægarparnir viðdvöl á Lemney og uppgötvuðu sér til furðu, og töluverðrar gleði, að þar bjuggu einvörðungu konur.