Atviksorð í þátíð # 72715
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Atviksorð í þátíð. Ljóðmæli eftir Hermann Pálsson. Baldur Hafstað ritar eftirmála.
Hermann Pálsson prófessor í Edinborg lést af slysförum þann 11. ágúst 2002 í Búlgaríu. Þar var endi bundinn á glæsilegan fræðimannsferil einhvers nafnkunnasta vísindamanns á sviði íslenskra fræða. Færri vissu um skáldskap Hermanns sem birtist snemma á fræðaferli hans í bókunum Söngvar frá Suðureyjum (1955) og Þjóðvísur og þýðingar(1958).
Eftir lát Hermanns kom í ljós að hann átti tilbúið handrit ljóða til útgáfu. Þessi ljóð sverja sig í ætt við fyrri kveðskap hans og grunnstefin eru ekki ósvipuð, rammíslensk en gjarnan tengd "útlegð" höfundarins og fjarlægð frá ættlandi og átthögum. Fróðlegt er að skyggnast inn í hugskot hins merka fræðaþular sem ýtir frá sér gömlum textum um sinn. Það er þyngri straumur og persónulegri tónn í þessari bók en hinum fyrri.
(Káputexti)