Austan Elivoga # 60177

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1964
Condition
Binding
Austan Elivoga. Ljóð eftir Böðvar Guðmundsson. Hér er komin fyrsta ljóðabók Böðvars. Kemur út bókasafni Ivars Orgland. Njörður P. Njarðvík hefur fært Ivari bókina.


Dalalæða



Hún læðist frá sjónum inn dalinn á döggvotum skóm

og dún sinn breiðir á holtin og grónar traðir

bæjanna, hylur þá sjálfa einn eftir einn,

ógrynnishaf, sem hvergi fær dunað né sorfið

strönd eða þangsker.

Hún þokast á brattann og fer

þvalköldum álagahöndum um vörður og leiti,

svo drangurinn gengur úr berginu brúnaþungt tröll,

brekkur og hlíðar togna í svimandi hrap.



Hún villir smalann, er leitar sauða og sér

svartálfabörnin að leik fyrir opnum riðum,

og heyrir útburðinn væla, veit að í holti

viðsjáll melrakkinn þýtur nasvís og frár

á sömu slóðir til ánna.

Eða hún hrekur

öndvert á brattann læki, hvítum fossi

stuggar úr gljúfrinu aftur upp fyrir brún.



Einmanalegust allra jarðneskra vætta

eigrar hún náttlangt þvert yfir víðar heiðar

og leitar í mónum löngu horfinna spora

liðinna manna,

hörfar fundlaus á braut

árla, en lætur lifandi grösum að drykk

liggja sólbrotin tár.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.