Bæði og ... # 17545

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Kópavogi
Date
1986
Condition
Binding
Bæði og ... Ljóð eftir Rögnu S. Gunnarsdóttur frá Arnórsstöðum.
Ragna S. Gunnarsdóttir var fædd á Arnórsstöðum í Jökuldal í október 1929. Foreldrar hennar voru Benedikta Bergþóra Bergsdóttir húsfreyja og Gunnar Jónsson bóndi á Gilsá. Ragna gekk í farskóla tíu mánuði alls í Jökuldalshreppi. Hún gekk einn vetur í unglingaskóla á Eskifirði, var tvo vetur í Héraðsskólanum á Laugarvatni og sótti eitt sumarnámskeið í Reykjavík. Eftir fertugt fór hún á þrjú framsagnarnámskeið, eitt teikninámsskeið, vatnslitanámskeið, tvö enskunámskeið, tvö skrúðgarðanámskeið og tvö útskurðarnámskeið. Ragna var í Kvæðamannafélagi Hafnarfjarðar í 14 ár. Hún var ein af stofnendum Átthagasamtaka Héraðsmanna og mætti fyrir Jökuldælinga á fyrsta fund þeirra og var í fjáröflunarnefnd félagsins um árabil. Var frá byrjun í félaginu HanaNú í Kópavogi fyrir fólk sextíu ára og eldra sem stofnað var til undirbúnings ellinnar. Hún starfaði í bókmenntaklúbbi og gönguklúbbi félagsins, ásamt annarri starfsemi þess um árabil. Sjötug gekk Ragna í Félag eldri borgara í Kópavogi og var einn af stofnendum Nafnlausa leikhópsins á vegum þess félags. Hún brá sér í ýmis skemmtihlutverk til þess að fá fólk til að hlæja. Hún starfaði við ýmis verslunar, ræstingar- og verkamannastörf. Má þar nefna hjá Osta- og smjörsölunni, efnalaug, Þjóðleikhúskjallaranum, Frank Michelsen, Þroskaþjálfaskólanum, Kópavogsskóla og vann m.a. sem dagmamma. Einnig átti hún og rak kvöldsölu í Hafnarfirði.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.