Bak við auga # 51667

Regular
1,900 kr
Sale
1,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1993
Condition
Binding
Bak við auga. Ljóð eftir Önnu S. Snorradóttur.
Anna var fædd 16. októ­ber 1920. For­eldr­ar henn­ar voru Snorri Sig­fús­son, skóla­stjóri og náms­stjóri, og Guðrún Jó­hann­es­dótt­ir, hús­freyja á Flat­eyri og Ak­ur­eyri.


Anna lauk stúd­ents­prófi frá M.A. 1942. Hún stundaði nám í Englandi og í Svíþjóð á ár­un­um 1945-47, m.a. var hún í starfs­námi hjá BBC í London.

Anna var kenn­ari við Barna­skóla Ak­ur­eyr­ar 1942-1945. Hún veitti fræðslu­deild KEA for­stöðu 1948-1949. Hún var bú­sett í Kaup­manna­höfn 1952-1958 og vann við skrif­stofu­störf hjá Flug­fé­lagi Íslands 1952-1954. Lengst starfaði hún hjá Rík­is­út­varp­inu, 1959-1970, og vann aðallega við dag­skrár­gerð fyr­ir börn. Hún hef­ur flutt margs kon­ar út­varps­efni síðan. Anna vann stjórn­un­ar­störf í Sólarfilmu frá 1972 þar til hún lét af störf­um þar vegna ald­urs.


Hún skrifaði reglu­lega grein­ar í blaðið Dag á Ak­ur­eyri (1942-1952), einnig tvö ár í Sam­vinn­una og var í 7 ár í út­gáfu­stjórn Hús­freyj­unn­ar. Hún þýddi nokkr­ar barna­bæk­ur og gaf út sex ljóðabæk­ur.


Anna gift­ist 1949 Birgi Þór­halls­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra og eig­anda Sólarfilmu. Þau eignuðust þrjú börn, Snorra Sig­fús pí­anó­leik­ara og tón­skáld, Guðrúnu Sig­ríði flautu­leik­ara og Þór­hall fiðluleik­ara og eig­anda Sólarfilmu.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.