Bannfæring og kirkjuvald á Íslandi 1275-1550 # 88774
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Bannfæring og kirkjuvald á Íslandi 1275-1550. Lög og rannsóknarforsendur. Eftir Láru Magnúsardóttur.
Markmið bókarinnar er að skapa nýjar forsendur til rannsókna á heimildum um bannfæringu og dómstóla kirkju á tímabilinu 1275 til 1550, með því að rannsaka sögu íslenskra miðalda með hliðsjón af evrópskum viðmiðum og þróun. Nýju ljósi er varpað á lög og stjórnsýslu á Íslandi á miðöldum með því að greina þau í samhengi við sögu almennu kirkjunnar sem stofnunar frekar en að leita skýringa á atburðum og stjórnmálaþróun innanlands. Stjórnskipulag á Íslandi frá lögtöku Jónsbókar og kristinréttar hins nýja á áttunda tug þrettándu aldar fram til siðaskipta gerði ráð fyrir tvískiptu yfirvaldi kirkju og konungs. Höfundur sýnir fram á að stjórnkerfið sem lögin lýsa var virkt og að íslenska kirkjan hvorki naut né sóttist eftir sjálfstæði frá almennu kirkjunni. Bannfæring, sem lá við öllum brotum á lögum kirkjunnar hefur því víðtæka vísun við rannsóknir á stöðu stofnunarinnar í ríkinu og dómsvaldi hennar. Íslenskar heimildir um beitingu bannfæringar frá árunum 1430-1550 hafa varðveist betur en víðast og veita því einstaka innsýn í samskipti leikmanna og kirkju á tímabilinu. Rannsóknin markar tímamót með því að sýna að þeir sem bannfærðust voru ekki útskúfaðir í samfélaginu og með nýjum hugtakaskilningi og endurskoðun heimilda birtast miðaldakirkjan og dómskerfi hennar á allt annan hátt en í því neikvæða ljósi kúgunar og geðþótta sem við erum vön. (Bókatíðindi 2007).