Basil fursti. Ambátt Indverjans # 70672
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Basil fursti. Ambátt Indverjans. (Óþekktur höfundur). 23. hefti.
Basil fursti birtist fyrst í bók á íslensku árið 1939 hjá Sögusafni heimilanna sem Árni Ólafsson stóð að. Talið er að Páll Sveinsson, barnaskólakennari í Hafnarfirði, hafi íslenskað Basil fursta að mestu. Innihélt bókin sex sögur, bók númer tvö kom út 1940 og þriðja bókin árið 1941 og innihélt fimm sögur. Í beinu framhaldi af þessari útgáfu var farið að gefa út sérhefti með myndskreyttum kápum, í einum lit að jafnaði, og innihélt hvert hefti eina sögu. Fyrsta heftið hét Konuræninginn. Alls voru gefin út 52 hefti frá 1941 og til ársins 1947, að því talið er. Í seinasta heftinu sem kom út í þessari útgáfu, Tvíburasystrunum, gekk Basil fursti, sem var kunnur kvenhatari, í hjónaband og lauk ævintýrum hans að því loknu.
Kringum 1960 kom út þriðja útgáfan af Basil fursta, og var um að ræða endurprentun á sömu heftum og voru í bókunum annars vegar og hins vegar nokkrum lausum heftum, alls 23 hefti. Bláa þokan var fyrsta heftið af þeirri útgáfu og Gulldúfan númer 23. Síðan voru endurprentuð kringum 1970 tvö hefti af Basil fursta í nútímalegri útgáfu og eru þau almennt ekki hátt skrifuð af sönnum Basil fursta aðdáendum.