Beitilyng # 88357
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Beitilyng. Ljóð eftir Jórunni Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. Beitilyng er eina bók Jórunnar frá Sörlastöðum.
Jórunn Ólafsdóttir fæddist á Sörlastöðum í Fnjóskadal 8. maí 1920. Hún ólst þar upp hjá foreldrum sínum og bjó hjá þeim að undantöldum námsárum í Gagnfræðaskóla Akureyrar 1939-42 uns hún flutti eftir lát móður sinnar til Akureyrar með föður sínum og bróður árið 1956.
Jórunn vann fyrst í Skóverksmiðjunni Iðunni og síðar við innheimtu og fleiri störf fyrir Dag o.fl. um 15 ára skeið, en dvaldist löngum á Kristneshæli vegna veikinda.
Jórunn var í mörg ár formaður Sjálfsvarnar, félags sjúklinga á Kristneshæli og tók mikinn þátt í félagsstarfi SÍBS. Þá lagði hún bindindismálum lið og gegndi trúnaðarstörfum fyrir Dýraverndunarfélag Akureyrar.
Jórunni voru bernskuslóðirnar í Fnjóskadal kærar og var hún jarðsett í Illugastaðakirkjugarði.
Jólin heima.
Ég man það kvöld, er lítið kertaljós
mér ljóma bar, sem fögur himinsól.
Í hjarta mér það græddi gleðirós
og gaf mér friðinn dýrsta, er lífið ól.
Ég minnist þess, er lýsti vakan löng,
hve léttist brún og mýktist rödd og fas,
er vinahópur jólasálma söng
og síðan pabbi helgan boðskap las.
Og móðir mín um bæ sinn glöð þá gekk
og gjafir veitti og kveikti ljós við ljós,
að launum bros og fyllstu þökk hún fékk
- þá fannst mér gróa í hverju spori rós.