Benjamín H. J. Eiríksson í stormum sinna tíða # 71333
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Benjamín H. J. Eiríksson í stormum sinna tíða. Eftir Hannes Hólmstein Gissurarson.
Benjamín H. J. Eiríksson var fæddur 19. október 1910, dáinn 23. júlí 2000.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1932 og stundaði nám í Friðriks-Vilhjálms-háskólanum í Berlín 1932–1933, þar sem hann varð vitni að valdatöku nasista. Hann stundaði síðan nám í Uppsölum í Svíþjóð 1933–1935 og í leynilegum flokksskóla, Vesturskólanum í Moskvu 1935–1936. Hann lauk hagfræðiprófi frá Stokkhólmsháskóla 1938, þar sem einn kennari hans var Gunnar Myrdal. Benjamín starfaði næstu ár á Íslandi. Hann hafði gengið í kommúnistaflokkinn og síðan í Sósíalistaflokkinn, en sagði sig úr honum 1939 til að mótmæla fylgispekt flokksins við Ráðstjórnarríkin undir stjórn Stalíns.
Benjamín stundaði framhaldsnám í hagfræði í Minnesota-háskóla í Minneapolis 1942–1944, þar sem einn kennari hans var George Stigler, og Harvard-háskóla í Cambridge, Massachusetts 1944–1946, þar sem einn kennari hans var Joseph Schumpeter. Eftir doktorspróf frá Harvard-háskóla gerðist hann starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en sneri til Íslands 1951 og gerðist ráðunautur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hann var bankastjóri Framkvæmdabanka Íslands 1953–1965, þegar hann dró sig í hlé af heilsufarsástæðum.
Eftir Benjamín liggja margar greinar, ritgerðir og álitsgerðum, og var nokkrum þeirra safnað saman í Rit 1938–1965, sem kom út á áttræðisafmæli hans 1990. Prófessor Hannes H. Gissurarson skrifaði ævisögu hans, sem kom út 1996.